Beggulútur
20.06.2007 22:57:44 / gjosta

Ekki allveg dautt blogg

Þetta blogg er nú eiginlega allveg búið að vera en mig langaði að deila þessu með ykkur...það er orðið aðeins of seint fyrir mig að átta mig á þess en...

Ert þú að velta því fyrir þér hvort þú sért tilbúin(n) til að eignast barn? Þá ættirðu kannski að taka þetta próf fyrst!

Fituprófið

Smurðu hnetusmjöri á sófann og aðeins upp á gardínurnar. Settu nokkrar kjötbollur á bak við sófann og láttu þær vera þar yfir sumarið.

Leikfangaprófið

Náðu í kassa með 25 kílóum af Legó-kubbum. Fáðu vin þinn til að dreifa vel úr kubbunum á gólfið í íbúðinni. Láttu binda fyrir augun á þér. Reyndu svo að fara frá svefnberginu og inn í eldhús og aftur til baka. Það er bannað að vera í skóm og alveg bannað að æpa því það getur vakið barnið um nætur.

Stórmarkaðsprófið

Fáðu lánað eitt dýr af millistærð (t.d. geit) og farðu með hana í næsta stórmarkað að versla. Hafðu auga með geitinni allan tímann og borgaðu fyrir allt sem hún étur eða eyðileggur.

Fataprófið

Hefurðu prófað að klæða tveggja ára gamalt barn í föt? Fáðu þér stóran, lifandi og spriklandi kolkrabba. Troddu honum í lítið innkaupanet og passaðu að hafa alla armana inni í pokanum.

Matarprófið

Keyptu þér stóra plastkönnu. Fylltu hana til hálfs með vatni og hengdu hana svo upp í loftið í snúru. Láttu könnuna sveiflast til og frá eins og pendúl. Reyndu nú að koma einni matskeið af hafragraut niður um stútinn á könnunni um leið og þú leikur flugvél með skeiðinni. Helltu svo öllu innihaldinu á gólfið.

Næturprófið

Saumaðu þér lítinn poka úr sterku efni og fylltu hann með 4-5 kílóum af sandi. Klukkan 15 tekur þú pokann upp og byrjar að ganga um gólf með hann um leið og þú raular. Þessu heldur þú áfram til kl. 21. Leggðu þá pokann frá þér og stilltu vekjaraklukkuna á 22. Þá þarftu að vakna, ná í sandpokann og syngja öll þau lög sem þú hefur mögulega heyrt um ævina. Semdu svo 10-12 ný lög og syngdu þau til kl. 4 um morguninn á meðan þú gengur um gólf með pokann. Stilltu vekjaraklukkuna á 5. Vaknaðu og taktu til morgunmat. Gerðu þetta alltaf 5 daga í röð og líttu glaðlega út!

Sköpunargáfuprófið

Fáðu þér eggjabakka. Búðu til krókódíl úr honum með aðstoð skæra og málningar. Fáðu þér svo tóma klósettrúllu og búðu til fallegt jólaljós úr henni. Þú mátt aðeins nota límband og álpappír. Að lokum skaltu fá þér tóma mjólkurfernu, borðtennisbolta og tóman Kornflakes-pakka. Búðu til alvöru eftirlíkingu af Eiffel-turninum.

Bílprófið

Gleymdu því að fá þér BMW og fáðu þér station-bíl (þið vitið þessi löngu að aftan til að geyma vagna, kerrur og alls konar fylgihluti!) Keyptu þér súkkulaðiís í brauði og settu hann í hanskahólfið. Láttu hann vera þar. Finndu krónu. Settu hana inn í geislaspilarann í bílnum. Fáðu þér stóran pakka af kexkökum og myldu þær allar í aftursætið. Nú er bíllinn tilbúinn!

Þolpróf kvenna

Fáðu lánaðan stóran grjónapúða og festu hann framan á magann á þér. Þú getur notað öryggisnælur og nælt pokanum í fötin þín. Hafðu pokann framan á þér í 9 mánuði. Að þeim tíma liðnum geturðu fjarlægt 1/10 af innihaldi pokans ? 9/10 verða eftir.

Þolpróf karla

Farðu inn í næsta apótek. Settu seðlaveskið þitt opið á borðið og segðu apótekaranum að taka eins og hann vill. Farðu nú í næsta stórmarkað. Farðu inn á skrifstofu og gerðu samning við eigandann um að launin þín verði lögð inn á reikning búðarinnar um hver mánaðamót. Keyptu þér dagblað. Farðu með það heim og lestu það í ró og næði. Í síðasta sinn!


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 23:51:38 / gjosta

Þetta verðið þið að lesa!!!!!!

Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd. Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá. Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls. ekki. sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!! Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK! Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax. Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax! Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 19:12:40 / gjosta

Prinsinn er kominn í heiminn

Þann 1. mars fæddist gríðarlegamyndarlegur og risasmár drengur.  Hann er kominn með heimasíðu á barnalandi og er slóðin www.vignisbarn.barnaland.is  þar getiði séð fréttir af okkur en síðan verður ekki með aðgangsorð í bili. Munið svo bara að kvitta í gestabókina :) Þar er líka í gangi nafnasamkeppni og allar góðar tillögur tekna til greina;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 20:25:34 / gjosta

Kominn tími á nýja færslu

Nú er ég búin á Skaganum og komin í verknám í Keflavík og líst rosalega vel á þetta allt hérna. Er á fæðingadeildinni og nú þegar búin að vera viðstödd fæðingu og keisara og þetta er ALLT öðruvísi en ég hélt og ótrúlega áhugavert allt saman. Svo bý ég hjá Höllu sem er mjög fínt svona þegar við verðum orðnar vanar að sofa í sama rúmi :) Við stefnum að því að vera duglegar við að heimsækja ættingjana á meðan ég verð hérna.

Um helgina var ættamót hjá ættinni hennar ömmu heitinnar í Sangó í Sandgerði og við fórum öll familían nema mamma sjálf sem var pínu leiðinlegt en hún er á fullu í skólanum. Þarna var fullt af fólki sem ég rétt kannaðist við en það vissi aðeins meira hver ég var og sagðist hafa séð mig síðast þegar ég var "svona lítil" en ég bara man ekkert eftir því 8l

Vignir kom svo suður á miðvikudagskvöldið og fór á sunnudagskvöldið en það var verið að vígja Landbúnaðarstofnun eða eitthvað svoleiðis.... en við höfðum það hrikalega gott á hóteli og alles, geðveikt notalegt og ekkert skemmtilegt að segja bless á flugvellinum. Það er nefnilega mjög gaman að sækja í flug en ekkert gaman að keyra í flug :(

Frumburðurinn minn hann Hrollur er núna til sölu en get ekkert gert með hann á næstunni svo ég ætla að kanna hvort einhver vill kaupa hann. Þið getið séð auglýsinguna á www.847.is. Annars segi ég held ég ekkert mikið... allavega ekki sem ég man eftir en það kemur þá bara næst...


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 15:08:47 / gjosta

NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!

ALLIR VELKOMNIR - AÐEINS FYRIR KARLA

Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt hvert námskeið Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:

FYRRI DAGUR

HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ? Skref fyrir skref með glærusýningu

KLÓSETTRÚLLUR VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? Hringborðsumræður

MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)

DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA? Pallborðsumræður, nokkrir sérfræðingar

AÐ TAPA GETUNNI  Að missa fjarstýringuna til makans. Stuðningshópar

LÆRA AÐ FINNA HLUTI Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi. Opin umræða

SEINNI DAGUR

TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU? Hópvinna og hlutverkaleikir

HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM PowerPoint kynning

SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar

ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL? Ökuhermir

AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA Fyrirlestur og hlutverkaleikir

HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR Slökunaræfingar,hugleiðsla og öndunartækni

AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR Komdu með dagatalið þitt í tímann

AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR Einstaklingsráðgjöf og samtöl


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 10:01:38 / gjosta

Hálfnuð í verknámi

Þá er verknámið mitt á Skaganum hálfnað og einhvernveginn kemur það manni alltaf jafn mikið á óvart hvað tíminn líður hratt og hversu lítið virðist vera til af honum.    Ég fó sumsé norður síðasta sunnudag og naut þess í botn að vera heima um helgina.  Á föstudagskvöldið fórum við Vignir á slúttið hjá Sláturhúsinu en vorum nú komin snemma heim eins og Lýðheilsustöð ráðleggur.  Á laugardaginn réðumst við í að koma baðherberginu á neðri hæðinni í nothæft ástand en það hefur verið hundaherbergi í mörg ár og sturtubotninn hundarúm.  Svo nú er baðið bara ótrúlega vel útlítandi miðað við fyrri störf og hægt að fara í sturtu með þokkalegu móti þar. 

Svo er ég komin á þessa líka rosa drossíu eins og afi í Sangó mundi nú segja.  Fólksbílnum var sumsé skipt út um helgina og sést ég nú geysast um á svörtum Subaru Legacy sem er allveg æðislegur, árgerð 2002, fjórhjóladrifinn og allar græjur.  Ég fattaði eiginlega ekki hvað það munar miklu að vera á fjórhjóladrifnum bíl.  Er bara vön að vera á framdrifnum fólksbílum en þessi er betru á sumardekkjunum heldur en hinn nokkurtíma á nagladekkjunum!!  Svo fór ég auðvitað á hestbak en ekki þó á blesa minn sem hristir mig bara í sundur heldur á eðal konuhestinn hana Skrýtlu J sem ég stefni á að hafa sem reiðhrossið mitt fram eftir vetri.

 

Annars veit ég ekki allveg hvaða komment þetta eru frá systkinum mínum með fiskibollurnar en sennilega endar með því að ég verð að fara sjálf eða redda einhverjum sem getur sinnt þessari verulega flóknu eldamennsku sem þarf til að elda fiskibollur í dós!!  Hinsvegar líst mér mun betur á að skreppa til Katrínar og elda eitthvað fyrir hana og skreppa kanski á nautaat og í konunglega reiðskólann í leiðinni ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 22:39:42 / gjosta

Akranes the place to be??

Þá er ég komin á Skagann og er á þriðju vaktinni í verknámi. Mér líst bara vel á þetta, frekar lítið að gera en það breytitst vonandi eitthvað.  Veðrið er búið að vera hryllilega leiðinlegt með roki og rigningu en það á víst að skána um leið og við förum í helgarfrí.  Við búum í því sem er kallað bústaðurinn sem er mini heimavist þar sem nemar gista ásamt nýbökuðum feðrum og konum sem eru að bíða eftir að eiga.  Við erum á fínum herbergjum með sameiginlega eldunaraðstöðu og stofu svo það er nettur heimavistarfílingur á þessu öllu og svo erum við í fríu fæði á sjúkrahúsinu þannig að það er mjög vel hugsað um mann hérna.  Við Sandra vorum búnar svo snemma á mánudaginn að við skelltum okkur í borgina og eyddum restinni af deginum í Kringlunni og tókst að kaupa bara slatta J  

 

Síðan fer ég aftur norður um helgina og hlakka voða til að komast heim í kotið mitt og vera einhvern veginn bara heima, svo það er bara að vona að það verði almennilegt veður þegar ég þarf að keyra á milli og komist örugglega á milli staða ;)

 

En nokkuð skondið var að gerast hér í vinnunni og nú halda örugglega einhverjir að þagnareiðurinn sé fokinn útum gluggann en svo er nú ekki allveg.  Þær voru nefnilega að hafa orð á því við mig hérna hvað ég væri rosalega lík Helgu Völu og það fyndna er að þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem ég hreyri þetta!! Spurning hvað þær mundu segja ef ég tæki lagið fyrir þær ????


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 21:15:30 / gjosta

Helv...

Ég var búin að skrifa fullt sem er allt týnt.... fari það í XXXXXXX

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 21:15:20 / gjosta

Helv...

Ég var búin að skrifa fullt sem er allt týnt.... fari það í XXXXXXX

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 11:24:56 / gjosta

Lélegasti bloggari í heimi

Já ég hef verið sæmt titlinum "lélegasti bloggari allra tíma" og ber hann vel.  Það hefur ýmislegt gerst síðan síðustu línur voru skrifaðar.

Við mæðgur fórum allar til Spánar í byrjun mánaðarins og það var æði.  Vorum einn dag í Barcelona sem er mjög falleg og versluðum góðan slatta þar.  Eyddum svo einum degi í vatnsleikjagarði og maður verður bara 5 ára aftur.  Allveg hrikalega gaman :) Annars vorum við bara í bænum okkar sem var mjög fínn.  Við vorum allar ánægðar með ferðina en ég ekki eins viss um að flugfreyjurnar hafi verið eins ánægðar með okkur :S

Svo er skólinn byrjaður á fullu með tilheyrandi ferðum á milli Húsavíkur og Akureyrar en það er nú mikill munur að geta gist hjá Sunnu og Þórarni þegar það hentar.  Ég fer í verknám á þessari önn tvær vikur á kvenna- og fæðingadeild í Keflavík og í 3 vikur á handlækningu á Akranesi.  Það verður örugglega mjög gaman og brýtur upp önnina að fara eitthvað.. þarf ekki að vera í fyrirlestrum allveg fram að prófum.

Réttirnar voru á sínum tíma og við Vignir vöknuðum kl 4.30 og vorum mætt kl 7.20 í morgunkaffi heima.  Veðrið var æðislegt og allveg endurnærandi að komast í gamla sveitfílinginn.næstu dagar einkenndust af tölverðum strengjum í stjána bláa vöðvunum.  Annars átti dóttir Sævaldar og Jóhönnu moment helgarinnar, hún vildi endilega fara í kjól í hádegismatnum og ég var að hjálpa henni að finna kjólinn... hún sagðist ætla að leita á neðri hæðinni og ég átti að leita á efri hæðinni, en síðan hætti hún við og vildi að ég leitaði niðri því það væri DAUÐUR ÚLFUR á neðri hæðinni.  Ég hélt hún væri að bulla eitthvað en henni var fúlasta alvara með þessu.  Ég bað hana svo um að sýna mér gripinn og gekk hún þá með mér niður á neðri hæðina og benti á refskinn sem hékk á veggnum.. það var dauði úlfurinn :)

Jæja.. ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili og hafið það bara gott þangað til næst 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 10:22:00 / gjosta

Byrjuð á ný að blogga


Já ég er byrjuð að blogga á ný.  Skólinn er byrjaður svo ég get notað leiðinlega tíma til að blogga.  Sumarið er búið að vera fínt.  Fór á landsmót og tónleika með Sigurrós í Ásbyrgi en missti af afmælninu hans Árna sem var hroðalegt en ég þurfti að fara í próf strax eftir helgina. Svo var ég náttúrulega að vinna á sjúkrahúsinu sem var rosa fínt.  Við fórum líka í hestaferð sem varð að lokum 15 daga ferð en dagleiðirnar voru stuttar því flestir voru í vinnu með en leiðirnar sem við fórum voru frábærar.  Vatnshlíðina í Reykjadal, Laxárdal, Bárðardal, Ljósavatnsskarð og í gegnum Vaglaskóg t.d. Allveg rosa gaman.

Við mæðgurnar erum að fara allar til Spánar á fimmtudaginn og verðum í fimm nætur og verður örugglega rosalega gaman.  Við verðum rétt hjá Barcelona og skreppum örugglega þangað, vona bara að það fari enginn að sprengja á okkur.

Annars er skólinn bara byrjaður og það er allverg ótrúlegt hvað maður er fljótur að skipta um gír, núna er ég farin að keyra aftur á milli, gista í Möðruvallastrætinu og fara í skólann og það er eins og meður hafi bara aldrei farið neitt. Og það sem meira er að ég er komin á þriðja ár sem er allveg ótrúlegt, mér finnst ég bara vera nýbyrjuð að læra þetta..og kann ekki neitt..hehehe.

Held ég láti þetta bara gott heita í bili. Tata.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 02:53:18 / gjosta

Árás kjóanna

Já það réðust sko á mig kjóar í gær.  Ég var útí Steindal að kíkja á hrossafjölskylduna mína sem gegnur þar sjálfala.  Til að komast til þeirra þurfti ég að ganga nokkra tugi metra sem er svo sem ekki til frásögufærandi nema hvað að í mel einum sem ég ætlaði að gera mér ferð yfir voru kjóar með hreiður.  Vignir var búinn að uppfræða mig um það að kjóar væru mjög árásargjarnir ef maður nálgaðist hreiðrið þeirra svo ég fór að öllu með gát.  Ég sé að þeir eru á vappi ca 15 metra frá mér og heyrðist í ungum hjá þeim.  Áhyggjulaus gekk ég áfram og var bara að fjarlægjast þá frekar en hitt. Eeeennnn þá... donk..fugl í haus...aaarrrrggg...best að öskra eins og kelling...önnur árás frá kjóanum...best að baða út höndunum fyrir ofan haus og hlaupa eins og fætur toga.. já þetta var sko ekkert grín og bara tilviljun að ég slapp lifandi8|  Annars held ég þegar ég pæli í því eftirá að þetta ljúfa fuglapar hafi í raun ekki verið komið með unga heldur hafi þetta verið leikur hjá þeim að standa í mónum og gefa frá sér ungahljóð til að leiða mig í áttina frá hreiðrinu.  Þegar ég svo var komin óþarflega nálægt því gerðu þau árás...:klikk:

Annars er það helst að frétta að folaldið mitt á að heita Háseti og þakka ég öllum þeim sem tóku þátt í nafnavalinu fyrir sinn hlut. Og hann er ekkert smá flottur, meira segja ekki bara flottur af því að hann er krútti minn:)

Svo unnum við Andakt mikið afrek fyrr í kvöld þegar við komumst í úrslit í frimakeppni Grana og hún fékk sinn fyrsta verðlaunapening ever og ég minn fyrsta sem félagsmaður Grana8)

Það styttist svo þokkalega í landsmót og það eru ekki nema 10 dagar þangað til!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 03:25:56 / gjosta

Það gengur bara betur næst

Það ber helst í fréttum að það er kominn vetur aftur svo við skulum ekki halda að við búum í mannaheimum eittt augnablik..óneii.  En ég á líka lítið folald sem er bara fimm daga gamalt og dúsar inni á meðan ísöld gengur yfir.  Hann er rauðtvístjörnóttur foli og auðvitað algör krúttíbolla :haha:  Svo nú er önnur nafnasamkeppni því hann er undan Hágangi og á helst að heita Há-eitthvað.  Mér er búið að detta nokkuð í hug en gaman væri að fá tillögur frá hugmyndaríkum lesendum.

Annars er ég á næturvakt og er hrikalega þreytt.  Annars hef ég það að segja úr vinnunni sem ég má nú ekki tala mikið um opinberlega að heilbrigðar hægðir eru ekki sjálfsagður hlutur, en þetta er nú væntanlega eitthvað sem allir sen hafa komið nálægt vinnu á heilbrigðisstofnunum eða elliheimilum.  Þetta kann að hljóma sem algjörlega óþarft innlegg en í raun er ég bara að benda á enn eitt atriði sem við getum verið þakklát fyrir.  Svo þangað til næst bið ég bara að heilsa í bili og megið þið öll hafa góðar hægðir :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 17:48:36 / gjosta

Nýtt blogg

Já I´m back og datt í hug að byrja á smá fróðleik:

Smá um stjörnumerkin...
 
Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.
 
Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
 
Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.
 
Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.
 
Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
 
Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
 
Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.
 
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.
 
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
 
Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.
 
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.
 
Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

» 9 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 18:16:13 / gjosta

Jól og áramót

Ég tek þetta bara í tímaröð:

Eftir prófin fór ég heim í Gunnarsstaði í 2 daga sem var voða gott.  Við pabbi og Þórarinn vacum-pökkuðum ull, járnuðum, fórum á bak og ég lék við ótrúlega feitu og sætu hvolpana.  Síðan brunaði ég inná Húsavík á föstudeginum 16. des því við Vignir ætluðum í jólaferð inná Akureyri og gekk það allt saman vel.  Ég bakaði sörur sem voru borðaðar með bestu lyst en geymdust ekki lengi...frekar en góðgæti yfirleitt. 

Á aðfangadagskvöld vorum við 2 saman hérna heima en þetta eru fyrstu jólin mín að heiman.. sem er reynda ekki allveg rétt því einusinni var á  Álandi og einsinni vorum við pabbi hjá ömmu og afa :)  við elduðum rjúpur og höfðum það rosalega gott.  Við fengum matvinnsluvél frá mömmu og pabba sem á örugglega eftir að koma að góðum notum og svo gáfum við Vignir hvort öðru hjálm í jólagjöf og ætlum að gera heiðarlega tilraun til að nota þá.  Á jóladagskvöld fórum við í mat til foreldra hans og spiluðum trivial.  Ég lærði svo undir próf og fór á hestbak milli jóla og nýárs sem var fínt að próflestrinum undanskildum...svo var afmæli hjá Dísu hans Einsa í sumarbústað hérna inní sveit sem var rosa stuð og fóru nokkrir á kostum sem ekki er við hæfi að viðra hérna 8)

Svo kíktum við austur í árlega ferð til að örmerkja og notuðum tækifærið og fórum daginn áður og gistum bara.  Þar hitti ég Gumma og Katrínu sem ég hef ekki hitt í ár og aldir en samt einhvernveginn eins og það hafi bara verið í gær nema að ég veit voða lítið hvað þau aðhafast þessa dagana.  Svo voru hvolparnir enn sætari en síðast og farnir að leika sér á fullu.. þeir eru svo hrikalega sætir..og ég er geðveikislega hvolpasjúk 8| en hvernig er annað hægt..hvolpar og folöld eru það sætasta sem til er, svo á þeim aldri sem þau leika sér.  Svo kom Lísa í heimsókn í fyrradag og við kíktum í búðir og ég keypti mér peysu og vítamín í þeirri von að verða stútfull af orku út allt þetta ár..

Ætli ég láti þetta ekki bara gott heita að sinni og óska öllum lesendum gleðilegs árs og takk fyrir það gamla;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4