ALLIR VELKOMNIR - AÐEINS FYRIR KARLA
Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta
sótt hvert námskeið Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er
eftirfarandi:
FYRRI DAGUR
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ? Skref fyrir skref með
glærusýningu
KLÓSETTRÚLLUR VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI Æfingar með körfuefni (teikningar
og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA
UPPÞVOTTAVÉLINA? Pallborðsumræður, nokkrir sérfræðingar
AÐ TAPA GETUNNI Að missa fjarstýringuna til makans.
Stuðningshópar
LÆRA AÐ FINNA HLUTI Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess
að snúa húsinu við gargandi. Opin umræða
SEINNI DAGUR
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST Sönn saga
frá manninum sem spurði til vegar
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR
BÍL? Ökuhermir
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU
ÞINNI OG MAKA Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar,hugleiðsla og öndunartækni
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl